Kastro Vefir
Vefsíðugerð, endurnýjun og viðhald. Skoðaðu verkefni, verð og hvað er innifalið.
Kastro Vefir
Sjálfstætt íslenskt tæknifyrirtæki
Kastro er sjálfstætt tæknifyrirtæki í Reykjavík. Vefir, innviðir og öryggi ásamt fimm eigin verkefnum: Kastro Lookup, Dmark, DMZ, Critical.is og Hýsill. Hýsill er í bið sem stendur.

Samhliða vöruþróun tek ég að mér afmörkuð verkefni fyrir fyrirtæki. Umfang og tímasetningar eru staðfest áður en vinna hefst.
Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.
Vefsíðugerð, endurnýjun og viðhald. Skoðaðu verkefni, verð og hvað er innifalið.
Kastro VefirProxmox og Ceph ráðgjöf á Íslandi. Reynsla af Proxmox frá 2017 og rekstri eins stærsta Proxmox-umhverfis landsins. Hönnun, yfirferð, flutningar og bilanagreining.
Yfirferð aðgangs, stillinga og gagna, með skýrri forgangsröðun úrbóta.
Verð, umfang og mánaðarþjónusta eru á síðu Kastro Vefir. Skoða verð og umfang
Fimm verkefni frá Kastro, hvert með sinn tilgang. Lookup, Dmark og Critical.is eru í loftinu; DMZ er í alpha-prófun. Hýsill er í bið.
Opinberar upplýsingar um lén eða IP-tölu á einum stað: WHOIS, DNS, TLS-skilríki, auðkenning tölvupósts, GeoIP, ASN og bakvísun (reverse DNS).
Vinnusvæði fyrir lénin þín. Keyrðu prófanir á SPF, DKIM, DMARC og BIMI, skoðaðu færslurnar og vinndu þig í gegnum það sem þarf að laga.
Chromium-viðbót sem reynir að maska valin nöfn, kennitölur og leyndarmál á tækinu áður en skilaboð fara til ChatGPT eða Claude og setur þau svo aftur inn í svarið.
Daglegt yfirlit yfir alvarlega veikleika (CVSS 9,0 og hærra), raðað eftir því hvort verið sé að misnota þá í raun. Allt sem liggur að baki einkunninni er sýnilegt.
Íslenskur vettvangur til að smíða, setja upp og keyra hugbúnað. Hugmyndin er einföld: tengdu GitHub og fáðu virkt forrit yfir HTTPS án þess að þurfa að sjá um netþjón.
Þróunin er í bið vegna anna í öðrum verkefnum.
Kastro á þessi .is-lén og tekur við tilboðum í þau. Ekkert ásett verð; sendu tilboð og ég svara persónulega.
Stutt og auðmunanlegt lén sem hentar vel fyrir vöru, app eða þjónustu fyrir heimilið.
Íslenska orðið yfir hest. Gott lén fyrir hestamennsku, ferðaþjónustu eða íslenska hestinn.
Öll tilboð eru skoðuð. Kastro áskilur sér rétt til að hafna hvaða tilboði sem er.

Andri Pétur Hafþórsson
Ég þróa vörurnar og er tengiliður vegna þjónustu og öryggismála. Bakgrunnur minn er í kerfisstjórnun, tækniinnviðum, netöryggi og hugbúnaðarþróun.
Kastro er lítið fyrirtæki í rekstri eins manns. Þú hefur beint samband við þann sem ber ábyrgð á vinnunni.
ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Endurnýjaði tækniinnviði RVX, hannaði nýja starfsstöð með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi fyrirtækið í gegnum vottunarferlið.
Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Kastro eða vörum þess.
Öryggistilkynningar: andri@kastro.is

Spurningar um Lookup, Dmark, DMZ, Critical.is, Hýsil eða verkefni? Hafðu beint samband. Ég tek að mér afmörkuð verkefni eftir samkomulagi. Fyrirspurnir um vörur eru velkomnar.