kastro.
← ← aftur heim
LAGALEGT

Skilmálar.

Síðast uppfært: 2026-10-31

Samkomulag

Þessir skilmálar gilda um notkun þína á kastro.is og þjónustu sem Kastro veitir, en Kastro er rekið af Andra Pétri Hafþórssyni á hans eigin kennitölu. Með því að nota vefinn eða þjónustu Kastro samþykkir þú þessa skilmála.

Þjónusta

Kastro þróar eigin hugbúnað (Hýsil, Dmark, Lookup og dmz) og tekur að sér afmörkuð verkefni í vefsíðugerð, tækniráðgjöf, innviðum og öryggi. Vörur Kastro geta haft sína eigin skilmála. Afrakstur og ábyrgð í verkefnum eru skilgreind í sérstökum þjónustusamningum milli Kastro og hvers viðskiptavinar.

Hugverkaréttur

Allt efni á kastro.is, þar á meðal texti, hönnun, lógó og Kastro stjörnumerkið, er eign Kastro og Andra Péturs Hafþórssonar. Þú mátt ekki afrita, dreifa eða búa til afleidd verk án skriflegs leyfis.

Takmörkun á ábyrgð

Þessi vefsíða er veitt „eins og hún er“. Þótt lögð sé áhersla á nákvæmni er ekki ábyrgst að efni vefsins sé tæmandi eða villulaust. Þjónustustig er skilgreint í einstökum þjónustusamningum.

Gildandi lög

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Öllum ágreiningi skal vísa til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Samskipti

Spurningar varðandi skilmála þessa: legal@kastro.is eða andri@kastro.is. Andri Pétur Hafþórsson, Kastro, Hamraborg 34, 200 Kópavogur, Ísland.