Um Kastro
Hugbúnaður, innviðir og öryggi.
Kastro er sjálfstæður íslenskur hugbúnaðar- og öryggisrekstur Andra Péturs Hafþórssonar, rekinn á hans eigin kennitölu. Áherslan er á eigin vörur, ásamt afmarkaðri tækniráðgjöf og vefþjónustu undir heitinu Kastro Vefir.

Ég vinn við kerfisstjórnun, tækniinnviði, netöryggi og hugbúnaðarþróun. Bakgrunnur minn nær meðal annars yfir upplýsingatækni fyrirtækja, flugumferðarstjórnarkerfi og tæknilega forystu hjá RVX.
Þar endurnýjaði ég alla tækniinnviði fyrirtækisins og stýrði flutningi þess í nýtt húsnæði. Ég hannaði nýju starfsstöðina frá grunni með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi síðan fyrirtækið í gegnum vottunarferlið þar til vottun náðist.
Hjá Kastro sinni ég vöruþróun og samskiptum við viðskiptavini. Spurningar um vörur, þjónustu og öryggi berast beint til mín.
Persónuleg réttindi og reynsla Andra
ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Kastro eða vörum þess.
Hvar eru gögnin?
Staðsetning vinnslu og vistunar fer eftir þjónustu. Á meðan Hýsill er í lokaðri þróun og prófunum keyra prófunarforrit á Íslandi en kóði er byggður í Evrópu. Aðrar þjónustur Kastro eru hýstar í Finnlandi eða Þýskalandi og viðkvæmustu gögnin eru varðveitt á Íslandi.
Kóði, byggingarskrár og container images í prófunum Hýsils geta verið unnin eða vistuð utan Íslands. Nánari upplýsingar um vinnslu, varðveislu og þjónustuaðila þarf að skoða fyrir hverja þjónustu.
Rekstrarupplýsingar
- Heiti
- Kastro
- Rekstraraðili og tengiliður
- Andri Pétur Hafþórsson
- Starfsstöð
- Reykjavík, Ísland
- Netfang
- andri@kastro.is
- Skráð heiti rekstraraðila
- Andri Pétur Hafþórsson
- Kennitala rekstraraðila
- 210898-2209
- Skráð heimilisfang
- Hamraborg 34, 200 Kópavogur
- Verð og VSK
- Öll auglýst verð eru með 24% VSK.